lau. 25. feb. 2017 18:21
Ásgeir Sigurgeirsson skoraði bæði mörk KA í sigri liðsins gegn Gróttu í dag.
Ásgeir tryggði KA sigur gegn Gróttu

Ásgeir Sigurgeirsson skoraði bæði mörk KA í 2:1-sigri liðsins gegn Gróttu í riðli 1 í A-deild Lengjubikars karla í knattspyrnu í Akraneshöllinni í dag. Pétur Steinn Þorsteinsson skoraði hins vegar mark Gróttu í leiknum. 

KA tryggði sér með þessum sigri sín fyrstu stig í riðlakeppninni, en liðið beið lægri hlut fyrir Víkingi Reykjavík í fyrstu umferð riðlakeppninnar. Grótta er aftur á móti enn án stiga, en liðið tapaði, 5:0, fyrir Keflavík í fyrsta leik sínum í riðlakeppninni. 

til baka