mán. 27. mars 2017 19:03
Philippe Coutinho.
Barcelona býður leikmann fyrir Coutinho

Barcelona hefur mikinn áhuga á að krækja í Philippe Coutinho, leikmann Liverpool, í sumar og ætlar að reyna allt til þess að lokka Brasilíumanninn til Spánar.

Hinn 24 ára gamli Coutinho hefur skorað sex mörk í 20 leikjum með Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í vetur, en hann er að spila sitt fimmta tímabil með liðinu.

Börsungar eru sagðir ætla að bjóða króatíska miðjumanninn Ivan Rakitic í skiptum fyrir Coutinho, auk þess að borga á milli. Rakitic er 29 ára gamall og kom til Barcelona fyrir þremur árum en framlengdi samning sinn nýverið við félagið til ársins 2021.

til baka