sun. 28. maí 2017 23:18
Þetta gengur fínt

„Jú, jú, þetta gengur fínt núna hjá mér,“ sagði Andri Rúnar Bjarnason, markaskorari Grindvíkinga, eftir 1:0 sigur á Val í Pepsideild karla í knattspyrnu í kvöld.

Þetta var fimmta mark hans í fimm leikjum í deildinni og var hann að vonum ánægður með gengi liðsins. „Við reynum að nýta styrkleika okkar og í kvöld gekk leikskipulagið alveg upp. Það er fínt að vera kominn með tíu stig eftir fimm leiki, en við ætlum okkur að spila eins og við gerum best og vonumst til að það dugi okkur,“ sagði markaskorarinn.

til baka