fös. 21. júlí 2017 13:39
Edu Cruz og Kristijan Jajalo markvörður Grindavíkur í leik gegn Þór í fyrra.
Edu Cruz aftur til Grindavíkur

Spænski knattspyrnumaðurinn Edu Cruz, sem lék með Grindvíkingum í 1. deild karla í fyrra, er kominn aftur til félagsins eftir að hafa spilað með norska liðinu Raufoss fyrri hluta ársins.

Cruz er þrítugur varnarmaður en hann lék 19 af 22 leikjum Grindvíkinga í 1. deildinni í fyrra og skoraði tvö mörk. Hann lék með Raufoss í norsku C-deildinni en hafði áður leikið með liðum í neðri deildum Spánar og er uppalinn hjá Las Palmas á Kanaríeyjum.

Cruz er kominn með leikheimild og getur því spilað með Grindvíkingum gegn Stjörnunni í Garðabæ á sunnudagskvöldið.

til baka