fös. 21. júlí 2017 17:07
David Atkinson í ÍBV treyjunni.
Enskur miðvörður til Eyjamanna

Karlalið ÍBV í knattspyrnu fékk liðsstyrk í dag þegar enski miðvörðurinn David Atkinson gekk í raðir félagsins.

Atkinson er 24 ára gamall, uppalinn hjá enska liðinu Middlesbrough en náði ekki að spila leiki með aðalliði félagsins. Hann fór til Carlisle og lék á fjórða tug leikja með því í ensku D-deildinni en síðast var hann á mála hjá utandeildarliðinu Blyth Spartans.

Atkinson er ætlað að fylla skarð Avni Pepa sem er farinn frá ÍBV og er genginn til liðs við norska B-deildar liðið Arendal.

til baka