lau. 23. sept. 2017 15:00
Sigvaldi Björn Guðjónsson
Fimm íslensk mörk í öruggum sigri

Fimm íslensk mörk hjálpuðu Århus að vinna Tønder, 29:22 í dönsku A-deildinni í handknattleik í dag. Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði þrjú og þeir Róbert Gunnarsson og Ómar Ingi Magnússon eitt mark hver. 

Århus fór upp í toppsæti deildarinnar með sigrinum, en liðið hefur unnið þrjá af fyrstu fjórum leikjum sínum í deildinni. 

til baka