lau. 23. sept. 2017 15:48
Sigurbjörg Jóhannsdóttir skoraði tíu mörk.
Sigurbjörg með tíu mörk í sigri Fram

Sigurbjörg Jóhannsdóttir skoraði tíu mörk fyrir Fram sem vann öruggan 31:21-sigur á Fjölni í 3. umferð Olísdeildar kvenna í handknattleik í dag. Fram hefur unnið tvo leiki og gert eitt jafntefli í fyrstu þremur leikjum sínum á meðan Fjölnir hefur tapað tveimur og gert eitt jafntefli. 

Staðan í hálfleik var 14:12, Fram í vil. Íslandsmeistararnir voru mun sterkari í síðari hálfleik og var öruggur sigur staðreynd. Guðrún Jenný Sigurðardóttir var markahæst í liði Fjölnis með átta mörk. 

Mörk Fram: Sigurbjörg Jóhannsdóttir 10, Þórey Rósa Stefánsdóttir 6, Ragnheiður Júlíusdóttir 4, Elísabet Gunnarsdóttir 4, Hildur Þorgeirsdóttir 4, Arna Þyri Ólafsdóttir 2, Marthe Sördal 1

Mörk Fjölnis: Guðrún Jenný Sigurðardóttir 8, Ólöf Ásta Arnþórsdóttir 4, Berglind Benediktsdóttir 3, Andrea Jacobsen 2, Dóra Sif Egilsdóttir 1, Helena Ósk Kristjánsdóttir 1, Elísa Ósk Viðarsdóttir 1, Ylfa Dögg Ástþórsdóttir 1

til baka