Lögreglan á Austurlandi brýnir fyrir fólki að vera ekki á ferðinni fyrir austan næsta sólarhringinn að nauðsynjalausu. Veðurspá gerir ráð fyrri óvenjumikilli úrkomu í landshlutanum.
„Spáð er óvenjumikilli úrkomu sem byrjar í kvöld og nótt og eykst smám saman og nær hámarki í fyrramálið,“ segir í tilkynningu lögreglu.
Samfara svona mikilli rigningu megi búast við töluverðum vatnavöxtum í ám og lækjum auk þess sem aukin hætta sé á grjót- og skriðuföllum. Vegfarendum er bent á að kynna sér vel færð á vegum sem og veðurspá áður en haldið er af stað.