þri. 21. nóv. 2017 22:40
Ronaldo að skora í leiknum gegn APOEL í kvöld.
Enn eitt metið hjá Ronaldo

Cristiano Ronaldo skoraði tvö af mörkum Real Madrid en Evrópumeistararnir tryggðu sér sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í  knattspyrnu í kvöld þegar þeir burstuðu APOEL, 6:0, á Kýpur.

Ronaldo bætti enn einu meti í safn sitt. Hann er búinn að skora 18 mörk á þessu almanaksári í Meistaradeildinni en svo mörg mörk hefur engum tekist að skora í Meistaradeildinni á einu ári. Ronaldo hefur skorað samtals 113 mörk í Meistaradeildinni, fleiri en nokkur annar, en næstur er Lionel Messi með 97.

Þetta er 21. árið í röð sem Real Madrid kemst í 16-liða úrslit í Meistaradeildinni en Madridarliðið hefur hampað Evrópubikarnum tvö undanfarin ár.

til baka