Bakir Izetbegovic, einn af þremur forsetum Bosníu, hvatti Serba til að „sætta sig við sannleikann“ eftir að stríðsglæpadómstóllinn í Haag dæmdi fyrrverandi herforingja Bosníu-Serba, Ratko Mladic, í lífstíðarfangelsi í dag.
Mladic var fundinn sekur um þjóðarmorð í stríðunum sem geisuðu á Balkanskaga í lok 20. aldar.
Frétt mbl.is: Mladic dæmdur fyrir þjóðarmorð
„Eina leiðin til að framtíð landsins verði betri en fortíðin er sú að menn sætti sig við sannleikann,“ sagði Izetbegovic á blaðamannafundi í Sarajevo í Bosníu í dag.
„Það ætti enginn að kalla Ratko Mladic hetju, syngja söngva um hann eða upphefja glæpina sem hann framdi,“ bætti Izetbegovic við.
Mladic var kallaður „Slátrarinn frá Bosníu“ en ákæran á hendur honum var í ellefu liðum. Þar á meðal fyrir glæpi gegn mannkyninu. Hann var sakfelldur fyrir fjöldamorð á rúmlega sjö þúsund múslimum í Bosníu, karlmönnum og drengjum, í borginni Srebrenica árið 1995 og umsátrið um borgina Sarajevo þar sem yfir 10 þúsund manns létu lífið. Hann hyggst áfrýja dómnum.