Stjörnugrís innkallar brauðskinku vegna gruns um listeríu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjörnugrís.
Þeir neytendur sem eiga umræddar vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga henni eða skila í verslunum þar sem hún var keypt, að því er fram kemur í tilkynningunni.
- Vöruheiti: Brauðskinka
- Framleiðandi: Stjörnugrís
- Síðasti notkunardagur: 16.05.2024 og 14.05.2024
- Lotunúmer: 606124096 og 606124093.
- Dreifing: Bónus, Krónan, Nettó og Skólamatur.
„Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum viðskiptavinum fyrir skilning og samvinnu í þessum efnum,“ segir í tilkynningunni.
Frekari upplýsingar fást hjá Stjörnugrís á netfang: eftirlit@svinvirkar.is