Skil tilkynninga
Morgunblaðið birtir andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar alla útgáfudagana, frá mánudegi til sunnudags.
Tilkynningum er hægt að skila á eftirfarandi hátt:
Afhenda handrit
Tekið er á móti tilkynningunum í auglýsingadeild á 1. hæð í húsi Morgunblaðsins, Hádegismóum 2 í Reykjavík. Einnig er hægt að skila tilkynningum á skrifstofu Morgunblaðsins í Kaupvangsstræti 1 á Akureyri.
Hringja í síma 569 1111
Hægt er að lesa texta tilkynningar í síma og er textinn þá sleginn inn samstundis, og síðan lesinn upp aftur fyrir auglýsanda.
Senda á netfangið augl@mbl.is
Hægt er að senda texta tilkynningar í tölvupósti, ekki sem viðhengi, á netfangið augl@mbl.is. Mynd af hinum látna fylgi sem viðhengi.
Senda fax 569 1110
Hægt er að senda texta tilkynningar í bréfasíma, vélritaðan eða handskrifaðan með læsilegri skrift.
Með birtingarbeiðninni þurfa að fylgja upplýsingar um kennitölu greiðanda, nafn, heimilisfang og símanúmer.
Skilafrestur tilkynninga:
| BIRTINGARDAGUR | TILKYNNING BERIST FYRIR |
| Þriðjudagur-laugardagur | kl. 16 daginn fyrir birtingardag |
| Sunnudagur / mánudagur | kl. 16 á föstudegi |
Form
Form tilkynningar er staðlað en hæðin ræðst af texta og mynd. Ef óskað er eftir að hafa mynd í tilkynningu er hægt að skila henni sem venjulegri ljósmynd, skyggnu eða á stafrænu sniði. Myndin er notuð bæði fyrir tilkynningar og minningargreinar. Þegar mynd hefur birst er hægt að sækja hana í afgreiðslu í anddyri.
Tilkynninguna er hægt að greiða með símgreiðslu greiðslukorts, í tölvupóstinum eða símbréfinu. Gefa þarf upp númer kortsins, gildistíma korts og nafn korthafa. Veittur er 3% staðgreiðsluafsláttur þegar tilkynning er staðgreidd eða greidd með greiðslukorti.
Einnig er hægt að fá sendan gíróseðil og greiða tilkynninguna samkvæmt honum með 20 daga gjaldfresti frá útgáfudegi seðilsins. Gefa þarf þá upp kennitölu greiðanda.






