[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]

Spurt og svarað

Á þessari síðu er svarað algengustu spurningum varðandi Blað dagsins á netinu, innsendingu greina til Morgunblaðsins og fleiri tengd atriði.

Ég finn ekki Sunnudagsmoggann.

Sunnudagsmogginn birtist á laugardögum og er settur inn í Blað dagsins á sama tíma og laugardagsblaðið.
Til að skoða blaðið þarf að gera eftirfarandi: Tengjast Blaði dagsins. Smella í framhaldi á hnappinn "Sérblöð" Í glugganum sem þá birtist er m. a. hægt að velja Sunnudagsmoggann til að lesa. Ef lesa á blaðið deginum á eftir eða síðar er eftirfarandi gert: Smella á hnappinn "Dagatal" og velja dagsetningu viðkomandi laugardags. Smella í framhaldi á hnappinn "Sérblöð" Í glugganum sem þá birtist er m. a. hægt að velja Sunnudagsmoggann til að lesa.