[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
Þú ert hér: mbl.is > Myndasafn > Hjálp Hafðu samband

Skráning vegna birtinganota

Þeir sem ætla að kaupa myndir til birtinganota skrá sig inn í fyrsta sinn með því að smella á tengilinn Nýr viðskiptavinur sem er undir hnappnum Innskráning. Skráningarform er fyllt út og smellt á hnappinn Skrá notanda. Í framhaldi er send staðfesting í tölvupósti á uppgefið netfang. Staðfesta þarf móttöku póstsins til að fá aðgang að safninu. Þetta er gert í öryggisskyni svo tryggt sé að nöfn og netföng séu ekki misnotuð.

Notanda berst síðan annar tölvupóstur þar sem staðfest er að aðgangur sé virkur. Þá er hægt að skrá sig inn með notandanafni og lykilorði og hefja kaup.

Þeir sem skrá sig vegna birtinganota geta valið á milli reikningsviðskipta eða greiðslu með greiðslukorti. Greiðslukortanúmer og aðrar upplýsingar eru skráðar í fyrsta sinn sem kaup eiga sér stað. Næst þegar keypt er er valið á milli þess að staðfesta kaupin með því að smella á hnappinn Greiða með sama korti og síðast eða að nota annað kortanúmer. Greiðslukortanúmer eru dulrituð með viðurkenndri aðferð.

Myndakaup

Smellt er á tengilinn Kaupa sem er undir hverri mynd. Kaupandi ákveður til hvers nota á myndina og merkir við í pöntunarformi. Myndakaup eru síðan færð á reikning viðkomandi hafi þess verið óskað. Sundurliðaður reikningur fyrir hvern verkkaupa er sendur notanda mánaðarlega hafi nafn og kennitala verkkaupa verið skráð við kaup myndar.

Þeim sem kaupa myndir til birtinganota er boðið að senda valdar myndamöppur til viðskiptavina, kaupa margar myndir samtímis, fylgjast með yfirliti á myndakaupum allt að ár aftur í tímann og taka frá myndir í ákveðinn tíma. Þá er hægt að gefa upp nafn og kennitölu verkkaupa við kaupin til að fá sundurliðaða reikninga.

Höfundarréttur

Ljósmyndarar myndanna og Morgunblaðið eiga í sameiningu allan höfundarrétt að þeim. Óheimilt er að nota myndir úr safninu á þann hátt, að í bága fari við réttindi þess sem birtist á mynd eða á annars lögverndaðan rétt yfir myndefni, nema aflað sé samþykkis hans fyrirfram. Kaupanda ber að gæta þess, að slíkra réttinda sé gætt. Myndasafn Morgunblaðsins ber því enga ábyrgð á að þetta skilyrði birtingar sé ekki uppfyllt.

Næst: Verðskrá

Til baka