[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
Þú ert hér: mbl.is > Myndasafn > Hjálp Hafðu samband

Skráning vegna einkanota

Þeir sem ætla að kaupa myndir til einkanota skrá sig inn í fyrsta sinn með því að smella á tengilinn Nýr viðskiptavinur sem er undir hnappnum Innskráning. Skráningarform er fyllt út og smellt á hnappinn Skrá notanda. Í framhaldi er send staðfesting í tölvupósti á uppgefið netfang. Staðfesta þarf móttöku póstsins til að fá aðgang að safninu. Þetta er gert í öryggisskyni svo tryggt sé að nöfn og netföng séu ekki misnotuð.

Notanda berst síðan annar tölvupóstur þar sem staðfest er að aðgangur sé virkur. Þá er hægt að skrá sig inn með notandanafni og lykilorði og hefja kaup.

Greiðslukortanúmer og aðrar upplýsinga eru skráðar í fyrsta sinn sem kaup eiga sér stað. Næst þegar keypt er er valið á milli þess að staðfesta kaupin með því að smella á hnappinn Greiða með sama korti og síðast eða nota annað kortanúmer. Greiðslukortanúmer eru dulrituð með viðurkenndri aðferð.

Myndakaup

Smellt er á tengilinn Kaupa fyrir neðan myndina sem kaupa á. Þá birtist síða til að skrá upplýsingar. Ef fá á útprentaða mynd þarf að ákveða stærð og fjölda eintaka. Hægt er að velja um að ná í myndina í völdum verslunum Hans Petersen eða fá myndina senda heim. Að lokum eru kaupin staðfest.

Ef um útprentun á mynd er að ræða fær kaupandi staðfestingu með pöntunarnúmeri sem þarf að prenta út og framvísa í versluninni þegar myndin er sótt. Vefslóð á myndina er einnig send í tölvupósti til kaupanda. Myndir má sækja í verslanir Hans Petersen tveimur virkum dögum frá pöntun. Ef óskað er eftir heimsendingu er miðað við 3 virka daga; einnig bætist þá 200 kr. sendingargjald við upphæðina.

Allar myndir á vefnum eru auðkenndar með vatnsmerki til að koma í veg fyrir misnotkun. Merkin eru fjarlægð þegar mynd er keypt.

Verð á myndum til einkanota

Verð með 25,5% virðisaukaskatti eru eftirfarandi:

Stærð Útprentun Stafræn mynd Samtals
Engin útprentun 0 kr. 1250 kr. 1250 kr.
Pappír
15x21 sm 312 kr. 1250 kr. 1562 kr.
21x30 sm 539 kr. 1250 kr. 1789 kr.
24x30 sm 690 kr. 1250 kr. 1940 kr.
30x45 sm 1562 kr. 1250 kr. 2812 kr.
Strigi
40x40 sm 14.606 kr.   14.606 kr.
50x60 sm 17.126 kr.   17.126 kr.

Einnig má panta mörg eintök eða fleiri en eina stærð samtímis. Ofangreind tafla er því ekki tæmandi.

Höfundarréttur

Ljósmyndarar myndanna og Morgunblaðið eiga í sameiningu allan höfundarrétt að þeim. Óheimilt er að nota myndir úr safninu á þann hátt, að í bága fari við réttindi þess sem birtist á mynd eða á annars lögverndaðan rétt yfir myndefni, nema aflað sé samþykkis hans fyrirfram. Kaupanda ber að gæta þess, að slíkra réttinda sé gætt. Myndasafn Morgunblaðsins ber því enga ábyrgð á að þetta skilyrði birtingar sé ekki uppfyllt.

Næst: Birtinganot

Til baka