Hvernig á að nota vefinn?
Allir geta leitað í Myndasafni Morgunblaðsins án þess að greiða fyrir það. Ef kaupa á mynd þarf viðkomandi að vera skilgreindur sem notandi og skrá sig inn með notandanafni og lykilorði. Hægt er að velja á milli einkanota og birtinganota.
Með einkanotum er átt við að mynd sé ekki notuð til opinberrar birtingar (dæmi um einkanot: mynd sett í myndaalbúm, í ramma eða á vegg innan heimilis). Með birtinganotum er átt við að mynd sé notuð til opinberrar birtingar (dæmi um birtinganot: mynd í auglýsingum, bókum, blöðum, tlisti ímaritum, bæklingum, fyrirlestrum, veggspjöldum osfrv.)
Myndasöfn
Upphafssíða Myndasafnsins skiptist annars vegar í aðgerðarhluta sem er í vinstra dálki og nýjustu myndunum í safninu sem sýndar eru í hægra dálki. Myndasafn Morgunblaðsins samanstendur af þremur söfnum:
- Safn frá 1999 til dagsins í dag.
- Safn Ólafs K. Magnússonar 1947 til 1996.
- Safn 1972-1987.
Síðastnefnda safnið er einungis opið fyrir birtinganot.
Myndagallerí
Með reglulegu millibili eru settar upp myndasýningar með ákveðnu þema. Hægt er að kaupa myndir úr þessum sýningum.
Leit
Í leitaraðgerð er hægt að slá inn eitt orð eða fleiri og er þá leitað í öllum söfnunum. Einnig er hægt að virkja Ítarleit með því að smella á tenginguna fyrir neðan leitargluggann. Þar er m.a. hægt að velja í hvaða safni á að leita og leita að myndum sem birst hafa á ákveðnu tímabili.
Innskráning
Notandi getur skráð sig í Myndasafnið með notandanafni og lykilorði og smellt á hnappinn Innskráning. Nýskráning á sér stað með því að smella á tengilinn Nýr viðskiptavinur.
Notandi getur keypt myndir um leið og staðfestingarpósti um skráningu hefur verið svarað. Þá er hægt að fá lykilorð sent í tölvupósti hafi það gleymst.
Viðbótarþjónusta skráðra notenda
Þegar notandi hefur skráð sig inn bætist við í vinstra dálki Aðgerðir notanda. Þar getur notandi búið til möppur til að geyma valdar myndir, gert möppur virkar sem setja á myndir í og skoðað möppur. Hægt er að eyða einstökum myndum úr möppum og eyða möppum í heild sinni. Þeir sem skrá sig fyrir birtinganot geta sent möppur með myndum til viðskiptavina, keypt margar myndir samtímis í möppu, fylgst með yfirliti á kaupum fyrir mánuð í senn og tekið frá myndir í ákveðinn tíma. Í einkanotum er hægt að fá upplýsingar um fjölda keyptra mynda ár aftur í tímann. Allir notendur geta breytt skráðum upplýsingum og breytt lykilorði.
Hjálp
Hér að finna hjálpartexta um hvernig nota á Myndasafn Morgunblaðsins, hvernig á að skrá sig ásamt upplýsingum um hvaða þjónusta stendur til boða.
Hæð og breidd
Hægt er að velja hversu margar smámyndir birtast í hægri dálki í láréttri og lóðréttri röð. Mælt er með að miða valið við skjáupplausn viðkomandi skjás.
Næst: Einkanot






