Myndir á svipmyndavef
Myndirnar, sem birtast á þessum vef, eru eign Morgunblaðsins, en ljósmyndararnir sem þær tóku, eiga höfundarréttinn. Morgunblaðið sér um sölu myndanna samkvæmt samningi við ljósmyndarana.
Heimilt er að nota þessar myndir á Vefnum en þó með ákveðnum skilyrðum:
- Myndunum má ekki breyta.
- Höfunda verður að geta ásamt höfundarréttarmerkinu ©.
- Myndirnar má ekki vista annars staðar, heldur þarf að vísa í þær á vef Morgunblaðsins.
- Á bak við myndirnar þarf að vera slóð Morgunblaðsins, þannig að sé smellt á þær vísi þær á www.mbl.is
Almennt um höfundarrétt
Myndstef er samtök íslenskra myndhöfunda á sviði höfundarréttar sem stofnuð voru árið 1991. Aðilar að samtökunum eru félög myndlistarmanna, ljósmyndara, teiknara, leikmynda- og búningahöfunda, arkitekta og ýmissa annarra stofnana og einstaklinga sem fara með höfundarrétt.
Á heimasíðu samtakanna er að finna ítarlega umfjöllun um höfundarrétt á myndverkum.






