
Þann 22. nóvember árið 1963 kváðu við byssuskot í borginni Dallas í Texas og hálfri stundu síðar var John F. Kennedy, Bandaríkjaforseti úrskurðaður látinn, 46 ára gamall. Þessi atburður hafði gríðarleg áhrif á Bandaríkjamenn og heimsbyggðina alla og enn þann dag í dag, fjörutíu árum síðar, komast margir við þegar þeir rifja hann upp. Þá velta menn því fyrir sér hver þróun mála hefði orðið ef Kennedy hefði verið áfram forseti næsta kjörtímabil. Og stöðugt spretta upp nýjar samsæriskenningar um hverjir hafi staðið á bak við morðið.
Robert Dallek, sagnfræðingur við háskólann í Boston, segir að morðið hafi ekki eitt og sér gert Kennedy að goðsögn heldur einnig hlutverk sjónvarpsins í harmleiknum. Kennedy var fyrsti forsetinn sem kom fram í sjónvarpi og þjóðin muni eftir ungum og myndarlegum manni. Dallek segir Kennedy hafa verið einn af fjórum áhrifamestu forsetum í sögu Bandaríkjanna en hinir þrír eru George Washington, Abraham Lincoln og Franklin Roosevelt. Kennedy hafi glætt með þjóðinni nýja von.






