
Jóhannes S. Kjarval opnaði sýningu í Listamannaskálanum 9. febrúar árið 1961. Um hríð hafði þess verið vænst að Kjarval opnaði sýningu með nýjum verkum, og veturinn áður hafði hann leigt Listamannaskálann í einn og hálfan mánuð, en aldrei sett upp nein verk. Að þessu sinni hengdi hann upp 44 málverk. Ólafur K. Magnússon, ljósmyndari Morgunblaðsins 1947 til 1996, sem var góðvinur Kjarvals, tók myndirnar.






