[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]

Átökin fyrir botni Miðjarðarhafs harðna dag frá degi. Ísraelar og Palestínumenn berast á banaspjót og lausn þessarar deilu, sem staðið hefur í hálfa öld, virðist ekki í sjónmáli. Fjölmiðlar um allan heim keppast við að birta tölur um mannfall og eyðileggingu á báða bóga til að gefa yfirlitsmynd af ástandinu. Fjallað er ítarlega um friðartillögur stjórnmálamanna og hvernig þær verða að engu þegar á hólminn er komið. Það vill á hinn bóginn stundum gleymast að þessar tölur og samningaviðræður snúast um fólk. Kynslóðir fólks sem ekki geta um frjálst höfuð strokið og lifa við stöðuga stríðsógn og ótta. Þorkell Þorkelsson ljósmyndari ferðaðist um borgir og bæi Palestínumanna á Vesturbakkanum og Gaza í byrjun maí og kynnti sér hina mannlegu hlið ástandsins.

Palestína