
Víetnamar hafa ekki búið við friðsamlegt andrúmsloft nema í rúman áratug. Þorkell Þorkelsson ljósmyndari var í Víetnam og myndaði daglega lífið í Víetnam og birtir hér m.a. uppbygginguna í þessu fátæku landi. Eitt af því sem landsmenn þurfa að glíma við er afleiðing efnahernaðar í Víetnamstríðinu sem eyðilagði skóglendi og akra. Í efnunum leyndist eitt hættulegasta eiturefni sem maðurinn hefur bruggað; díoxín sem m.a. skemmir erfðaefni mannsins. Í grein sem fylgir þessum myndum (sjá tengil undir Sýningar) kemur fram að enn fæðast vansköpuð börn vegna þessa efnahernaðar.






