[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Valdamenn í Kína dreymir um stíflu sem hækka mun vatnið í Gljúfrunum þremur í fljótinu Yangtze, mesta fljóti Asíu og þriðja lengsta fljóti jarðar, hemja mannskæð sumarflóð, gera hafskipum kleift að sigla lengst inn í meginlandið, og framleiða meiri raforku en nokkuð annað orkuver í heiminum. En fórnarkostnaðurinn er mikill og framkvæmdin umdeild. Rúmlega tvær milljónir manna þurfa að yfirgefa heimili sín, sem verður sökkt ásamt um eittþúsund verksmiðjum, áttaþúsund merkum fornminjum og miklu ræktarlandi. Einar Falur Ingólfsson heimsótti stíflustæðið í upphafi árs 2000, sigldi eftir Yangtze með kínverskum ferðalöngum, skoðaði byggðir og náttúruperlur sem sökkva í lónið og kynnti sér sögu þessara miklu framkvæmda.