Reglur varðandi podcast á mbl.is
Podcast mbl.is er síða sem fellur undir enska hugtakið "directory".
Það efni sem Morgunblaðið framleiðir og miðlar á síðunni er á ábyrgð félagsins.
Á síðunni er hægt að nálgast efni sem framleitt er af þriðja aðila. Allt efni sem sótt er til þriðja aðila, er sótt á opin vefsvæði eða vef-þjóna, með s.k. RSS tækni. Morgunblaðið ábyrgist ekki framleiðslu annarra, hvorki efnislega eða með öðrum hætti.
Öllum er frjálst að sækja efni á podcastsíðuna án sérstakrar greiðslu, og er það gert á ábyrgð þess sem sækir efnið. Miðlun efnisins er með öllu óheimil.
Morgunblaðið velur það efni sem birtist á síðunni, en ber enga efnislega ábyrgð á því efni sem framleitt er af þriðja aðila.
Notkun og miðlun á tónlist, texta, myndböndum, og öðru höfundaréttarvörðu efni á síðunni er óheimil nema með samþykki rétthafa og ber framleiðandi sjálfur ábyrgð á að slíkir samningar séu til staðar.
Slóðir á podcastefni sem vafi er á að ekki séu samningar um verða fjarlægðar að beiðni rétthafa. Ef í ljós kemur að notandi podcast hefur gerst sekur um að setja höfundaréttarvarið efni í Hlaðvarpsdreifingu áskilur Morgunblaðið sér rétt til þess að fjarlægja allar slóðir sem tengjast viðkomandi efni.
Áður en Morgunblaðið tengir podcast notanda við podcastsíðu blaðsins þarf notandi að staðfesta þessa skilmála og að notandi beri ábyrgð á öllum skrifum, myndbirtingum, myndbandabirtingum og öðru efni sem birtist á síðu hans. Óheimilt er að birta á síðum efni sem særir blygðunarsemi manna.
Morgunblaðið ber á engan hátt ábyrgð á því sem notandi eða þeir sem heimsækja síðu notanda setja á síðu notanda.
Notandi samþykkir að miðla ekki í hljóði eða mynd ólöglegu efni, áreiti, hótunum eða nokkru öðru sem getur verið særandi og valdið skaða.
Morgunblaðið áskilur sér rétt til að grípa inn í, bregðist notandi ekki við óskum eða tilmælum um leiðréttingar/lagfæringar á skrifum sem teljast meiðandi eða brjóta gegn skilmálum þessum.
Jafnframt áskilur Morgunblaðið sér rétt til að loka fyrir podcast tengingar á síðu notanda, að hluta til eða í heild, án þess að notandi eða þriðji aðili öðlist skaðabótarétt.
Morgunblaðið ber ekki ábyrgð á tjóni vegna bilunar í tölvubúnaði eða ef þjónstan er óvirk. Morgunblaðið ber heldur ekki ábyrgð á þeim gögnum sem kunna að glatast af þessum sökum eða öðrum.
Rísi dómsmál vegna notkunar vefsins skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Um ágreininginn fer eftir íslenskum lögum.








Senda inn efni


