Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetur fólk til að vera á varðbergi gagnvart
þýfi og hafa samband ef grunsemdir vakna. Ennfremur er minnt á ábyrgð
þess sem kaupir þýfi.
Í 264. gr. almennra hegningarlaga er m.a. kveðið á um eftirfarandi:
Hver sem tekur við eða aflar sér eða öðrum ávinnings af broti samkvæmt
lögum þessum skal sæta sektum eða fangelsi allt að 2 árum. Sömu refsingu
skal sá sæta sem geymir eða flytur slíkan ávinning, aðstoðar við afhendingu
hans eða stuðlar á annan sambærilegan hátt að því að tryggja öðrum ávinning
af broti. Nú er brot ítrekað eða stórfellt og getur refsing þá orðið
fangelsi allt að 4 árum. Sé brot framið af gáleysi varðar það sektum eða
fangelsi allt að 6 mánuðum.
%method>
%init>