[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Íþróttablogg

skak.is

Skák.is | 19.3.2010
Morgunblaðið: Byrjaði þegar Spasskí mætti Hort 
Skák.is Þetta hefur verið mikil törn," segir Gunnar Björnsson, forseti Skáksambandsins. „Auðveldi parturinn er mótið sjálft, en undirbúningurinn er erfiðastur og tekur mest á. Það er taugatrekkjandi að bíða eftir því hvort allir skila sér. Hér er birt… Meira

Staða - Úrslit

Ísland
Önnur lönd
Íslandsmeistaramótið í sundi kl. 19:00 Lengjubikarinn Valur-Selfoss
Kristján Einar Kristjánsson á fullri ferð.

Kristján Einar Kristjánsson á fullri ferð. mbl.is

Íþróttir | mbl.is | 30.6.2009 | 15:23

Dómaraúrskurður færði Kristján Einar í 4. sæti

Dómaraúrskurður FIA frá Opnu Evrópsku Formúlu 3 mótaröðinni á Spa um síðustu helgi breytti röð efstu manna í keppninni um Copa bikarinn, sem Kristján Einar Kristjánsson keppir í. 

"FIA dómararnir eru mjög nákvæmir og ég átti frekar von á þessari niðurstöðu, því þótt ég hafi ekki átt aðild að atvikinu sem dæmt var á þá gerðist það beint fyrir framan mig í brautinni og var klárlega gróft brot," sagði Kristján Einar.

Atvikið varð undir lok kappakstursins þegar Bruno Palli frá Venezuela ók fyrir spænska keppandann Edgar Fernandez með þeim afleiðingum að Fernandez endaði utanbrautar með stórskemmdan bíl. Niðurstaðan færði Kristján Einar úr fimmta sæti í það fjórða.

Opna Evrópska mótaröðin í Formúlu 3 heldur nú til Bretlands, en næstu umferðir verða á laugardag og sunnudag á Donnington brautinni og Kristján Einar mætir þangað í æfingar og undirbúning nk.  fimmtudag.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Íþróttir / Formúla 1 — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Miðvikudaginn 17. mars
Þriðjudaginn 16. mars
Mánudaginn 15. mars
Sunnudaginn 14. mars
Laugardaginn 13. mars
Föstudaginn 12. mars
Fimmtudaginn 11. mars
Miðvikudaginn 10. mars
Þriðjudaginn 9. mars
Mánudaginn 8. mars