[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]

Nýtt á mbl.is

Íþróttablogg

skak.is

Skák.is | 11.2.2012
Hjörvar vann - Bragi með jafntefli 
Skák.is Hjörvar Steinn Grétarsson (2470) vann sterkustu skákkonu Englands Jovanka Houska (2414) í 5. umferð Breska deildakeppninnar sem fram fór í dag. Bragi Þorfinnsson (2426) gerði hins vegar jafntefli við norska alþjóðlega meistaranum Thorstein Bae. Þeir… Meira

Staða - Úrslit

Ísland
Önnur lönd
Victor Valdés markvörður og Gerard Piqué miðvörður Barcelona súrir í bragði eftir mark Osasuna í kvöld.

Victor Valdés markvörður og Gerard Piqué miðvörður Barcelona súrir í bragði eftir mark Osasuna í kvöld. AP

Vonir Barcelona dvína enn

Vonir Barcelona um að halda spænska meistaratitlinum í knattspyrnu í Katalóníu dvínuðu enn frekar í kvöld þegar meistararnir töpuðu 3:2 fyrir Osasuna á útivelli í spænsku 1. deildinni. Meira
Íþróttir | mbl | 11.2 | 20:29

Villas-Boas: Okkar versta frammistaða

Branislav Ivanovic, Frank Lampard og Raul Meireles...

Andre Villas-Boas knattspyrnustjóri Chelsea sá sína menn spila sinn versta leik á tímabilinu þegar liðið tapaði fyrir góðu liði Everton á Goodison Park í dag. Eftir tapið er Chelsea 15 stigum á eftir toppliði Manchester United og það er farið að hitna undir Portúgalanum í stjórastólnum. Meira

Íþróttir | mbl | 11.2 | 20:17

Ferdinand: Missti alla virðingu gagnvart Suárez

 Luis Suárez og Rio Ferdinand í leiknum í dag.

Rio Ferdinand miðvörður Englandsmeistara Manchester United segist hafa misst alla virðingu gagnvart Luis Suárez framherja Liverpool þegar hann var spurður af því hvers vegna hann hafi neitað að taka í hönd Úrúgvæans fyrir leik United og Liverpool í dag. Meira

Íþróttir | mbl | 11.2 | 19:25

Tottenham lék sér að Newcastle

Gareth Bale fagnar Benoit Assou-Ekotto eftir fyrsta mark Tottenham.

Tottenham mætti Newcastle í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Bæði lið eru í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti og því mátti búast við spennandi leik. Raunin varð hinsvegar allt önnur þar sem Tottenham gjörsigraði lélegt lið Newcastle 5:0. Meira

Íþróttir | mbl | 11.2 | 18:18

Aron Einar: Meiðslin vonandi ekki alvarleg

Aron Einar Gunnarsson verður að öllum líkindum ekki lengi frá.

Aron Einar Gunnarsson leikmaður Cardiff fór meiddur af velli á 7. mínútu gegn Leicester í ensku 1. deildinni í knattspyrnu í dag. Aron sagði í samtali við mbl.is að meiðslin væru líklega ekki alvarleg en það kæmi þó betur í ljós á morgun. Meira

Íþróttir | mbl | 11.2 | 17:35

Evra og Suárez - myndasyrpa

Patrice Evra fagnar um leið og Luis Suárez gengur framhjá...

Rækilega var fylgst með Patrice Evra og Luis Suárez í leik Manchester United og Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag, og það var svo sem engin furða eftir það sem á undan var gengið. Meira

Íþróttir | mbl | 11.2 | 16:59

Henry tryggði Arsenal sigur

Thierry Henry var hetja Arsenal í dag.

Thierry Henry var hetja Arsenal þegar liðið fagnaði 2:1 sigri gegn Sunderland á Leikvangi ljóssins. Henry skoraði sigurmarkið á lokamínútunni eftir að Arsenal hafði lent undir. Það gengur hvorki né rekur hjá Chelsea en liðið varð að sætta sig við 2:0 tap á móti Everton á Goodison Park. Chelsea og Arsenal eru nú jöfn að stigum í 4.-5 sæti og eru 15 stigum á eftir toppliði Manchester United. Meira

Íþróttir | mbl | 11.2 | 16:42

Breytingar á stjórn KSÍ - Gísli inn

Gísli Gíslason er mikill Skagamaður og er hér fyrir miðju á myndinni.

Gísli Gíslason var í dag kjörinn í stjórn KSÍ en hann tekur sæti Jóns Gunnlaugssonar sem ekki gaf kost á sér eftir 22 ár í stjórn sambandsins. Gísli fékk næstflest atkvæði í kjörinu en auk hans voru þau Ragnhildur Skúladóttir, Lúðvík S. Georgsson og Rúnar Arnarsson kosin til áframhaldandi stjórnarsetu. Meira

Íþróttir | mbl | 11.2 | 16:13

Emil skoraði í sigri Hellas Verona

Emil Hallfreðsson var á skotskónum með Hellas Verona.

Emil Hallfreðsson var á skotskónum þegar Hellas Verona bar sigurorð af Ascoli 2:0 í ítölsku B-deildinni í knattspyrnu. Emil skoraði fyrra mark liðsins á 50. mínútu og heimamenn bættu svo við öðru marki á 90. mínútu. Meira