[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]

skak.is

Skák.is | 11.2.2012
Hjörvar vann - Bragi með jafntefli 
Skák.is Hjörvar Steinn Grétarsson (2470) vann sterkustu skákkonu Englands Jovanka Houska (2414) í 5. umferð Breska deildakeppninnar sem fram fór í dag. Bragi Þorfinnsson (2426) gerði hins vegar jafntefli við norska alþjóðlega meistaranum Thorstein Bae. Þeir… Meira

Staða - Úrslit

Ísland
Önnur lönd
Aðalsteinn Eyjólfsson stýrði sínum mönnum í Eisenach til sigur á toppliði GWD Minden í gærkvöldi.

Aðalsteinn Eyjólfsson stýrði sínum mönnum í Eisenach til sigur á toppliði GWD Minden í gærkvöldi. Ljósmynd/Th. Levknecht

Lærisveinar Aðalsteins unnu toppliðið

Eisenach, sem Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar, vann í gærkvöldi topplið GWD Minden, 32:27, á heimavelli í þýsku 2. deildinni í handknattleik. Eisenach fluttist þar með upp í 9. sæti deildarinnar með 21 stig að loknum 20 leikjum og er átta stigum á eftir Minden sem enn situr í toppsætinu. Meira
Íþróttir | mbl | 12.2 | 10:08

Löwen í kröppum dansi í Eskilstuna

Róbert Gunnarsson skoraði eitt mark í Eskilstuna í gær.

Þýska handknattleiksliðið Rhein-Neckar Löwen lenti í kröppum dansi gegn sænska liðinu Guif í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum EHF-keppninnar í handknattleik í gærkvöldi. Bjarte Myrhol tryggði Löwen eins marks sigur fáeinum sekúndum fyrir leikslok, 35:34, en Svíarnir voru tveimur mörkum yfir, 34:32, þegar fjórar mínútur voru eftir. Meira

Íþróttir | mbl | 12.2 | 8:47

Góður sigur hjá Þóri og félögum

Þórir Ólafsson.

Þórir Ólafsson og samherjar hans í pólska liðinu Vive Kielce unnu í gærkvöldi ungverska liðið Veszprém, 24:21, í Meistaradeild Evrópu í handknattleik en leikið var í Ungverjalandi. Með sigrinum glæddust vonir leikmanna pólska liðsins um að komast í 16 liða úrslit keppninnar. Meira

Íþróttir | mbl | 11.2 | 19:18

HK vann Stjörnuna - Fram aftur á toppinn

Stella Sigurðardóttir var einu sinni sem oftar markahæst hjá Fram.

Það var ekki margt sem benti til sigurs HK í hálfleik þegar liðin áttust við í N1-deild kvenna í handknattleik í dag. Staðan var 15:20 Stjörnunni í vil en HK snéri þá taflinu við og skoraði 17 mörk gegn aðeins 10 mörkum Stjörnunnar í síðari hálfleik og hafði þar með sigur 32:30. Meira

Íþróttir | mbl | 11.2 | 18:02

Rakel Dögg til Stjörnunnar

Rakel Dögg Bragadóttir til liðs við Stjörnuna.

Rakel Dögg Bragadóttir landsliðsfyrirliði Íslands í handknattleik hefur ákveðið að ganga til liðs við Stjörnuna. Hún er uppalinn Stjörnumaður og gerði garðinn frægan með liði sínu áður en hún gerðist atvinnumaður í Danmörku og síðar Noregi. Síðast lék hún með norska liðinu Levanger. Meira

Íþróttir | mbl | 11.2 | 15:56

Valur hafði sigur gegn Gróttu

Hrafnhildur Skúladóttir var markahæst hjá Val gegn Gróttu í dag.

Valur hafði sigur gegn Gróttu 27:22 í N1-deild kvenna í handknattleik í dag. Staðan í hálfleik var 17:11 og sá munur hélst meira og minna allt til loka. Markahæst hjá Val var Hrafnhildur Ósk Skúladóttir með átta en Anna Úrsúla Guðmundsdóttir og Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir komu næstar með fjögur mörk hvor. Meira

Íþróttir | mbl | 12.2 | 8:55

Þórey og Rut fóru áfram

Rut Jónsdóttir.

Team Tvis Holstebro komst í gær í 8 liða úrslit EHF-keppni kvenna í handknattleik með sigri á Team Esbjerg, 27:24, á heimavelli í síðari viðureign liðanna. Esbjerg vann fyrri viðureignina með einu marki. Meira

Íþróttir | mbl | 11.2 | 15:34

Víkingar gerðu góða ferð til Eyja

Magnús Stefánsson skoraði þrjú mörk fyrir ÍBV en það dugði...

Víkingar unnu ÍBV í 1. deild karla í handknattleik með einu marki 22:21 og það í Vestmannaeyjum. Sami munur var á liðunum í hálfleik 8:9 og Víkingar héldu uppteknum hætti í þeim síðari. Meira