Daði jafnaði á síðustu stundu
Fylkir og Fram skildu jöfn, 3:3, í fjörugum leik í Reykjavíkurmóti karla í knattspyrnu í kvöld en leikurinn fór fram í Egilshöllinni. Framarar jöfnuðu metin með tveimur mörkum undir lok leiksins.
Andrés Már Jóhannesson kom Fylki yfir en Almarr Ormarsson jafnaði fyrir Fram. Tómas Þorsteinsson og Albert B. Ingason bættu við mörkum fyrir Fylki, 3:1. Guðmundur Magnússon minnkaði muninn skömmu fyrir leikslok og Daði Guðmundsson jafnaði á síðustu mínútunni með skoti beint úr aukaspyrnu.
Fylkir og Fram eru þá bæði með 4 stig eftir 2 leiki. Fjölnir og Leiknir R. eru án stiga eftir einn leik hvort og leikur þeirra stendur nú yfir í Egilshöllinni. Tvö liðanna komast í undanúrslit mótsins.
Til baka







Senda inn efni
