Kristján Gauti Emilsson hefur verið staðfestur sem leikmaður hollenska B-deildarliðsins NEC Nijmegen en þetta kom fram á heimasíðu félagsins fyrir stundu.
Kristján sem spilað hefur frábærlega með FH í sumar gerir þriggja ára samning við Nijmegen og hefur möguleika á eins árs framlengingu.
Kristján spilaði níu leiki með FH á tímabilinu í deildinni og skoraði í þeim fimm mörk. Kristján spilaði einnig þrjá Evrópuleiki með FH á tímabilinu og skoraði í þeim þrjú mörk en á sínum yngri árum var hann á mála hjá enska stórliðinu Liverpool.