Skagamenn aftur í annað sætið

Jón Vilhelm Ákason skoraði fyrra mark ÍA í kvöld.
Jón Vilhelm Ákason skoraði fyrra mark ÍA í kvöld. mbl.is/Golli

Skagamenn eru komnir í annað sætið í 1. deild karla á nýjan leik eftir að hafa misst það um stund í kvöld en þeir sigruðu Grindvíkinga, 2:0, á Norðurálsvellinum á Akranesi.

Jón Vilhelm Ákason kom þeim yfir á lokamínútu fyrri hálfleiks og Garðar B. Gunnlaugsson bætti við marki á 74. mínútu. Undir lok leiksins fékk Árni Snær Ólafsson markvörður ÍA rauða spjaldið en það kom ekki að sök.

Leiknir R. er með 27 stig á toppnum, ÍA 24, Þróttur R. 24, HK 21 og KA 20 stig í efstu sætunum. Leikur Hauka og HK stendur yfir og þar eru Haukar með 3:0 forystu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert