Stjarnan lyfti bikarnum - myndband

Stjarnan varð í kvöld Íslandsmeistari kvenna í knattspyrnu í þriðja sinn í sögu félagsins, en jafnframt í þriðja sinn á fjórum árum. Fögnuður leikmanna liðsins var ósvikinn eftir að Stjarnan tryggði sér titilinn í ár með 3:0-sigri á Aftureldingu í næstsíðustu umferðinni á heimavelli sínum í Garðabæ.

Á myndbandinu hér að ofan má sjá þegar Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, tók við Íslandsmeistarabikarnum í kvöld. Viðtöl við Ásgerði og fleiri leikmenn má sjá hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert