Kristinn dæmir á Celtic Park

Kristinn Jakobsson.
Kristinn Jakobsson. mbl.is/Ómar Óskarsson

Kristinn Jakobsson mun dæma leik Celtic og rúmenska liðsins FC Astra í Evrópudeildinni þegar liðin eigast við á Celtic Park í Glasgow á fimmtudaginn.

Sex íslenskir dómarar verða að störfum á leiknum. Aðstoðardómarar verða þeir Sigurður Óli Þórleifsson og Gylfi Már Sigurðsson. Auka aðstoðardómarar verða þeir Þóroddur Hjaltalín og Vilhjálmur Alvar Þórarinsson og fjórði dómari Gunnar Sverrir Gunnarsson.

Celtic er í efsta sæti D-riðils með fjögur stig eftir tvo leiki en FC Astra er án stiga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert