Hafsteinn Briem, sem lék með Frömurum í Pepsi-deild karla í knattspyrnu í ár, gekk í dag til liðs við Eyjamenn. Þetta kemur fram á vefnum 433.is.
Hafsteinn er 23 ára gamall miðjumaður og lék með HK til ársins 2011 en síðan með Val, Haukum og Fram. Hann lék 18 leiki með Framliðinu í deildinni í sumar og skoraði 4 mörk en var einn af mörgum leikmönnum þess sem sögðu upp samningi sínum eftir að liðið féll úr deildinni í haust.