Hlynur Atli skoðar aðstæður í Svíþjóð

Hlynur Atli Magnússon
Hlynur Atli Magnússon mbl.is/Ómar Óskarsson

Hlynur Atli Magnússon, miðvörður Þórs á Akureyri, er á leið til æfinga hjá sænsku liði, BK Forward, sem leikur í 2. deild þar í landi.

Hlynur hefur jafnað sig af meiðslum sem héldu honum frá leikjum Þórs undir lok tímabilsins í sumar en Þór féll úr efstu deild. Hann hefur nú jafnað sig á meiðslunum samkvæmt netmiðlinum Fótbolti.net sem greinir frá þessu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert