Sara Björk innsiglaði sigurinn

Sara Björk Gunnarsdóttir
Sara Björk Gunnarsdóttir mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði eitt af mörkum Rosengård þegar liðið burstaði Vittsjö, 4:0, á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Mörkin fjögur komu öll á 11 mínútna kafla í seinni hálfleik og innsiglaði Sara Björk sigurinn með fjórða markinu en hún lagði einnig upp eitt mark í leiknum. Þetta var fyrsta mark Söru í deildinni á tímabilinu en Rosengård hefur unnið alla þrjá leiki sína.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert