Fyrrum leikmaður Arsenal til Víkings?

Jonas Hebo Rasmussen
Jonas Hebo Rasmussen Ljósmynd/vikingur.net

Daninn Jonas Hebo Rasmussen, sem var um tíma leikmaður Arsenal, er kominn til Víkings þar sem hann verður til reynslu næstu daga. Þetta kemur fram á vikingur.net.

Jonas Hebo sem er fæddur árið 1991 hóf hann feril sinn með Hvidovre IF og þaðan fór hann til Arsenal árið 2007 þar sem hann var í 2 ár áður en hann gekk til liðs við FC Nordsjælland. Þaðan fór hann í uppeldisfélagið sitt Hvidovre og spilaði þar í 3 ár áður en hann gekk til liðs við Vejle í fyrra.

Jonas Hebo sem spilar aðallega sem sóknarsinnaður miðjumaður í "holunni" hefur spilað samtals 11 unglingalandsliðsleiki fyrir Danmörk og skorað í þeim leikjum 1 mark.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert