Jón Guðni og Rúnar léku í tapi

Jón Guðni Fjóluson í leik með Sundsvall.
Jón Guðni Fjóluson í leik með Sundsvall. Ljósmynd/gifsundsvall.se

Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá Sundsvall sem tapaði 2:0 á heimavelli gegn Djurgården í sænsku úrvalsdeildinni í dag.

Miðjumaðurinn Rúnar Már Sigurjónsson þurfti að gera sér að góðu að hefja leikinn á varamannabekknum en hann kom inn á eftir aðeins 26. mínútur.

Sundsvall er í 9. sæti deildarinnar með sjö stig en þeir eru nýliðar í sænsku deildinni. Næsti leikur liðsins er gegn Helsingsborgs en Guðlaugur Victor Pálsson leikur með þeim.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert