Ellert Hreinsson, framherji Breiðabliks í Pepsi-deild karla í knattspyrnu, framlengdi í dag samning sinn við félagið til næstu tveggja ára. Þetta kemur fram á Blikar.is.
Þessi 28 ára gamli framherji hefur spilað alla leiki liðsins í deildinni á þessari leiktíð, en hefur þó átt í erfiðleikum með að finna sitt gamla form.
Hann er uppalinn hjá liðinu en hann á að baki 134 leiki með meistaraflokki liðsins og hefur gert 36 mörk í þeim. Hann lék þá 73 leiki með Stjörnunni og 11 leiki með Víking Ólafsvík.
Ellert skrifaði í dag undir tveggja ára samning við Breiðablik, en hann verður eflaust klár í slaginn gegn ÍA á þriðjudaginn er liðin mætast á Akranesi.