Ásgeir Börkur Ásgeirsson, fyrirliði Fylkis, þurfti að fara af leikvelli eftir aðeins 25 mínútur þegar Fylkir sigraði Keflavík 3:1 í Pepsí-deildinni í knattspyrnu Keflavík í gærkvöldi. Haraldur Freyr Guðmundsson, fyrirliði Keflavíkur, fór sömu leið þegar nokkrar mínútur voru eftir.
Ásgeir meiddist aftan í læri í leiknum og lét gott heita en mun ekki hafa verið tæpur fyrir leikinn. Fylkir hefur ekki getað teflt fram öðrum miðjumanni, Jóhannesi Karli Guðjónssyni, í síðustu tveimur leikjum en hann er með brákað rifbein.
Sambærileg meiðsli og þau sem Ásgeir varð fyrir öftruðu framherja Keflvíkinga, Herði Sveinssyni, frá þátttöku í leiknum. Búist er við því að hann geti orðið leikfær fljótlega. Fyrirliði Keflavíkur, Haraldur Freyr Guðmundsson, fór af leikvelli í gærkvöldi þegar örfáar mínútur voru til leiksloka. Hann fékk högg á ristina og meiðsli hans eru líklega ekki alvarleg.