Samningi knattspyrnumannsins Sead Gavranovic við ÍBV hefur verið rift. Sead kom til ÍBV í upphafi tímabilsins og hefur aðeins leikið einn leik þegar hann kom inn á sem varamaður. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu ÍBV.
„Knattspyrnuráð karla ÍBV og Sead Gavranovic hafa komist að samkomulagi um riftun á samningi hans við félagið en leikmaðurinn kom frá danska félaginu Jammerbugt í upphafi tímabilsins.
Knattspyrnuráð karla ÍBV óskar leikmanninum velfarnaðar í framtíðinni.“