Bikarþrenna Berglindar

Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði þrennu fyrir Fylki í kvöld.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði þrennu fyrir Fylki í kvöld. mbl.is/Eggert

Fylkir var ekki í teljandi vandræðum með að tryggja sér sæti í undanúrslitum bikarkeppni kvenna í knattspyrnu í kvöld en Árbæjarliðið vann 1. deildarlið Grindavíkur 4:0 á Fylkisvelli.

Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði þrennu fyrir Fylki og Hulda Hrund Arnarsdóttir gerði eitt mark en öll fjögur mörk liðsins komu á fyrstu 35 mínútum leiksins.

Fylkir er eina liðið sem er komið í undanúrslit en á morgun leikur ÍBV við Selfoss og Stjarnan við Þór/KA. Átta liða úrslitunum lýkur ekki fyrr en laugardaginn 11. júlí en þá mætast Valur og KR.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert