Emil Pálsson, miðjumaðurinn sem FH-ingar kölluðu aftur úr láni hjá Fjölni á dögunum, fer beint í byrjunarlið Hafnfirðinganna þegar þeir mæta SJK Seinäjoki í fyrri leik liðanna í 1. umferð forkeppni Evrópudeildar UEFA í knattspyrnu en hann hefst í Helsinki klukkan 16.
Emil kemur þar í stað Bjarna Þórs Viðarssonar sem er í hópi varamanna í dag.
FH: (4-4-2) Mark: Róbert Örn Óskarsson. Vörn: Brynjar Á. Guðmundsson, Guðmann Þórisson, Kassim Doumbia, Böðvar Böðvarsson. Miðja: Emil Pálsson, Pétur Viðarsson, Davíð Þór Viðarsson, Þórarinn Ingi Valdimarsson. Sókn: Steven Lennon, Atli Guðnason.