KR og ÍBV mætast fjórða árið í röð í Borgunarbikar karla í knattspyrnu. KR-ingar fá Eyjamenn í heimsókn í Vesturbæinn á meðan Valsmenn fara norður yfir heiðar og spila við KA. Dregið var í höfuðstöðvum KSÍ í dag.
Í Borgunarbikar kvenna taka Fylkiskonur taka á móti ríkjandi Íslands- og bikarmeisturum Stjörnunnar en Selfoss fær Val eða KR í heimsókn.
Valur og KR mætast í síðasta leik átta liða úrslita Borgunarbikars kvenna 11. júlí.
Undanúrslit kvenna:
Selfoss - Valur/KR
Fylkir- Stjarnan
Leikið er 24. og 25. júlí.
Undanúrslit karla:
KR - ÍBV
KA - Valur
Leikið er 29. júlí og 30. júlí.