Daði lánaður til Leiknis

Freyr Alexandersson og hans menn í Leikni hafa fengið tvo …
Freyr Alexandersson og hans menn í Leikni hafa fengið tvo nýja menn síðustu daga. mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

Leiknismenn úr Reykjavík, nýliðarnir í Pepsi-deild karla í knattspyrnu, hafa fengið kantmanninn Daða Bergsson lánaðan frá Val út þetta keppnistímabil.

Daði, sem er tvítugur, hefur aðeins einu sinni verið í byrjunarliði Vals í deildinni í ár og komið við sögu í sjö leikjum Hlíðarendaliðsins. Hann er uppalinn Þróttari, og var síðan um skeið í röðum NEC Nijmegen í Hollandi áður en hann kom til Vals í júlí 2014.

Leiknir hefur þar með fengið tvo leikmenn til sín síðustu daga en hollenski framherjinn Danny Schreurs kom frá Roda í Hollandi og spilaði í fyrsta sinn þegar liðið mætti ÍA á dögunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert