Það fór ekki framhjá stuðningsmönnum Þórs að erkifjendur þeirra í KA höfðu tapað fyrir Haukum í 1. deild karla í knattspyrnu í kvöld.
Eftir leikinn er KA tíu stigum frá öðru sætinu sem gefur þátttökurétt í Pepsi-deildinni á næsta tímabili og voru Þórsarar duglegir að minna þá gulu og bláu á þá staðreynd á Twitter eftir leikinn eins og dæmin hér að neðan sýna. Þá voru aðrir knattspyrnuáhugamenn að velta sér upp úr stöðunni hjá KA, en búist var við miklu af liðinu fyrir tímabilið.
#Pepsi16 HAHAHAHAHHAHAAHHAHAHAHHAAHAHAHHAHAAHAHHAAHHAAHAHAHHAHAHAHAHAHhHHHahahahahahahahahahahahahahahahah lol.
— Jóhann Guðmundsson (@joishine) August 4, 2015
Nokkuð ljóst að einhverjir leikmenn ka skelltu sér til eyja um helgina #þyngsli
— Baldvin Rúnarsson (@baldvinr94) August 4, 2015
KA sýndu með þessu marki á 93. mín að þarna er á ferðinni lið sem gefst aldrei upp, flottur hópur sem mun ná langt #pepsi16
— Óðinn Svan Óðinsson (@OdinnSvan) August 4, 2015
Vona að Bjarni haldi starfinu sínu #fotboltinet
— Hjörtur Davíðsson (@hjorturdavids) August 4, 2015
Er það þá #pepsi17 núna? #blásvellir
— Tómas Þór Þórðarson (@tomthordarson) August 4, 2015
Bjarni Jó að fara fá stígvélið?
— Anton Ingi Leifsson (@antonleifs) August 4, 2015
KA 2015 var feit pæling sem gekk ekki upp #fotboltinet
— Orri Freyr Rúnarsson (@OrriFreyr) August 4, 2015