KR-ingar hafa boðað til fréttamannafundar í dag þar sem kynntur verður til leiks nýr leikmaður hjá félaginu.
Flest bendir til þess að sá leikmaður sé Indriði Sigurðsson, fyrirliði norska úrvalsdeildarliðsins Viking, en hann tók þá ákvörðun í sumar að þetta yrði hans síðasta tímabil í Noregi og flytur hann heim til Íslands að því loknu.
Indriði er uppalinn KR-ingur og lék með liðinu áður en hann hélt út í atvinnumennskuna árið 2000.