Rakel í þjálfarateymi Þróttar

Rakel Logadóttir
Rakel Logadóttir mbl.is/Árni Sæberg

Rakel Logadóttir fyrrverandi landsliðskona í knattspyrnu hefur verið ráðin aðstoðarþjálfari kvennaliðs Þróttar Reykjavíkur og að auki mun hún þjálfa 2. flokk félagsins.

Rakel var fjórum sinnu Íslandsmeistari með Val og tvisvar sinnum bikarmeistari og þá á hún að baki 26 leiki með A-landsliðinu.

Ásmundur Vilhelmsson var fyrir nokkru síðan ráðinn þjálfari kvennaliðs Þróttar sem féll úr Pepsi-deildinni í ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert