Norskt félag með tilboð í Björgvin

Björgvin Stefánsson í leik með Haukum síðasta sumar.
Björgvin Stefánsson í leik með Haukum síðasta sumar. mbl.is/Styrmir Kári

Norska B-deildarliðið Kongsvinger vill fá Björgvin Stefánsson framherja 1. deildarliðs Hauka í knattspyrnu til liðs við sig að því er fram kemur á fótbolti.net.

Lúkas Kostic þjálfari Hauka staðfestir í samtali við fótbolti.net að Haukum hafi borist tilboð frá Kongsvinger í Björgvin en hann var til skoðunar hjá félaginu á dögunum og skoraði í æfingaleik með því.

Björgvin varð markakóngur 1. deildarinnar á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði 20 mörk í 22 leikjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert