Valur staðfestir komu Söndru

Sandra Sigurðardóttir.
Sandra Sigurðardóttir.

Knattspyrnudeild Vals hefur staðfest að Sandra Sigurðardóttir, landsliðsmarkvörður úr Stjörnunni, sé gengin til liðs við félagið og hafi samið til þriggja ára. Þetta kemur fram á vef Vals.

Sandra er 29 ára og á langan meistaraflokksferil að baki, fyrst með Þór/KA/KS og síðan með Stjörnunni frá 2005. Hún er sjöunda leikjahæst allra knattspyrnukvenna í efstu deild hér á landi með 208 leiki og hefur spilað 11 landsleiki fyrir Íslands hönd.

Sjá fyrri frétt mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert