Stjarnan byrjar vel í Lengjubikarnum

Veigar Páll Gunnarsson skoraði eitt marka Stjörnunnar í sigri liðsins …
Veigar Páll Gunnarsson skoraði eitt marka Stjörnunnar í sigri liðsins gegn Fram í kvöld. Eggert Jóhannesson

Stjarnan lagði Fram að velli með þremur mörkum gegn engu þegar liðin mættust í fyrsta leik liðanna í riðli 1 í A deild Lengjubikars karla í knattspyrnu í Egilshöll í Grafarvogi í kvöld. 

Hilmar Árni Halldórsson sem gekk til liðs við Stjörnuna frá Leikni eftir síðasta tímabil skorað fyrsta mark Stjörnunnar á 11. mínútu leiksins. Grétar Sigfinnur Sigurðarson sem kom til Stjörnunnar frá KR síðastliðið haust bætti svo öðru marki Stjörnunnar sex mínútum síðar. 

Veigar Páll Gunnarsson innsiglaði svo sigur Stjörnunnar með marki undir lok leiksins og niðurstaðan 3:0 sigur Stjörnunnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert